Alur Álvinnsla ehf

Heilsa, öryggi
og umhverfi

Alur álvinnsla leggur ríka áherslu á öryggi innan fyrirtækisins, bæði hvað varðar starfsmenn og verktaka. Við vinnum stöðugt að því að greina og stýra hættum í okkar starfsumhverfi og stefnum að slysalausum vinnustað. Hjá Alur álvinnslu fá allir starfsmenn þjálfun í öryggismálum, verklagsreglur eru kynntar og þeim fylgt eftir með vikulegum fundum. Starfsmenn áhættumeta öll verk og halda vel utan um frávik, enda er alltaf hægt að læra af atvikum og koma í veg fyrir óhöpp með góðum samskiptum og sameiginlegum markmiðum í öryggismálum.

Reglulega eru framkvæmdar úttektir á öryggismálum til að tryggja að öryggismenning fyrirtækisins standist kröfur og gerðar úrbætur sé þess þörf. Öryggisvörður og Öryggistrúnaðarmaður hafa sótt námskeið á vegum Vinnueftirlits ríkisins og hafa umsjón með öryggismálum fyrirtækisins.

Alur álvinnsla er hluti af umhverfisvöktun iðjuveranna á Grundartanga, sem er með umfangsmestu og best vöktuðu iðnaðarsvæðum landsins. Tilgangur vöktunarinnar er að meta það álag sem starfsemi á iðnaðarsvæðinu veldur á umhverfið, samkvæmt vöktunaráætlun sem Umhverfisstofnun hefur samþykkt. Vaktað er andrúmsloft, árvatn, gróður, beitardýr, lífríki sjávar og umhverfi flæðigryfja.

Það er markmið Als álvinnslu að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif. Við leitum eftir skilvirkustu leiðum sem völ er á við notkun hráefna og orku, og eigum í samstarfi við viðurkennda aðila um endurvinnslu úrgangs sem fellur til í ferlinu.

Allur úrgangur er flokkaður í verksmiðju Als og skilað til viðeigandi samstarfsaðila. Markmið Als álvinnslu er að endurnýta eða endurvinna allt efni sem fellur til. Árlega er framkvæmd ein útblástursmæling undir eftirliti Umhverfisstofnunar, og grænu bókhaldi er skilað til stofnunarinnar á hverju ári.

Skrár